I Like It*
Myndasíður
12.09.2006 16:15:44 / zoom-

Heyriði. ..

Ég held að ég taki mér bara pásu hérna. Held að þessi pása sé löngu byrjuð því að ég hef ekki gert neitt hérna heil lengi. En ég mun blogga af og til ásamt hinum 7laides á www.blog.central.is/-7ladies   . Endilega veriði með annað augað á því (;

Seinna..


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 02:33:10 / zoom-

Hananú.

 

Það hlítur að vera komið 3-4 ár síðan ég bloggaði. Engin furða. Ég vinn meira en hestu og þá er ég að tala um gæða atvinnu hest. Ég var að vinna allan júní mánuð. Ég fékk 6 daga frí í heilann mánuð. Það hlítur að draga til sín nokkur prik ekki satt?

Mínir sumardagar hafa verið sælir. Ekki það að veðurguðinir séu eitthvað að gera okkur til geðs að sýna góða veðrið en.. Það sem ég hef verið að brallast við í sumar er bara að VINNA, hanga með stelpunum, vera með stelpunum, rúnta með stelpunum og vera aðeins meira að hanga og rúnta með stelpunum.

Ég kíkti í tívolíið á mánudaginn og svo aftur í kvöld. Þetta tívolí breytist voða lítið en þó er alltaf jafn gaman að því. Bollarnir alltaf jafn vinsælir á sínum stað. Það náttúrulega toppar alltaf allt ensku kunnátta fólks þegar kemur að að tjá sig. Eins og hjá henni Steinunni minni. :* Litla mús .. “ Karitas, hvernig segir maður að fá til baka á ensku?” Lovjú :* hehe..

Karitas Heimirsdóttir hefur enga útileigu farið í í sumar. Það er enn tími til að bæta það einhvern veginn upp. Er það ekki? Einhver til í að koma í útileigu með mér og og og .. ég veit ekki? Endilega láta vita af sér og ég verð snögg í snúningum að koma því fyrir á mínu þrönga sumar plani eða þannig. (: 

Mikið skelfingu var gaman síðustu helgi. Garðar félagi var með partý. Voða fínt með grillpinnum, jarðaber dýfð oní súkkulaði, gulrætur og blómkál með ídýfu og ekki má gleyma rúsínunni í pulsuendanum allur þessi æðislegi félagsskapur sem var til staðar. Byrjaði vel, en ekki endar allt vel eins og maðurinn sagði.

Ég er farin að hlakka til Verzlunnarmannahelgarinnar, Sandgerðisdaganna, Ljósanæturinnar og Menningarnæturinnar. Jii, það klikkar aldrei. Allavegana ekki síðustu ár. Það hefur alltaf toppað sumarið finnst mér.

En viti menn! Ég náði tíma í klippinu og strípur. Húrra fyrir því. Það er ekkert létt að fá tíma á þokkalegri stofu á góðu verði. Ónee.. Þið kannist kannski við þetta stelpur, eða kannski ekki. Ég veit ekki.

Ég ætla að fara segja þetta mjöög gott í bili. Ég er að reyna mitt besta, trúið því eða ekki, að blogga hér reglulega.

 

 

 

 

 

Ég kveð að sinni í suuumarSkapi.

                                           Over and inn mafakka.

Áfram Magni !!

IMG_2679.jpgIMG_2682.jpg

Sumarmyndir*

IMG_2686.jpgIMG_2689.jpgIMG_2680.jpg

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 20:07:13 / zoom-

Já,

-666- Góða kvöldið. -666-

Ætli ég og Steinunn höfðum ekki loksins hunskast í bíó á Omen. Hún var ekki eins ógeðsleg eins og ég var að búast við. En hún átti samt sín móment með ógeðslegu atriðin. Ég ætla ekki að nefna neitt dæmi svo ég fari ekki að eyðileggja myndina fyrir einhverjum (; Voða gaman hjá Steinunni greyinu að fara á svona myndir sem eru með mikið af hundum í. Hún Steinunn er svo hrædd við hunda, greyið. Haha. Alltaf þegar einhver hundur kom þá var Steinunn komin með jakkann sinn yfir haus. Hún missti af öllu þessu hræðilegu útaf hræðslu sinni við hunda. (: Dúllan á henni . haha. Gaman að því !

Jæja, mínir síðustu dagar eru búnir að vera frekar skrítnir. Er ekki mikið búin að gera nema - vakna snemma-vinna-heim-vera þreytt-rúnta um kvöldið - . Sama rútínan afturafturafturafturogaftur. Voða gaman það NEI ! Alveg komin með upp í kok á því hvað það er Ekkert hægt að gera hér. Eina skiptið sem maður sér fólk er á Hafnagötunni. Og maður keyrir fram og til baka. Kannski þekkir maður 3 á rúntinum þá er  maður allt kvöldið að heilsa því. Hæ – Rúntur – Hæ – Rúntur – Hæ – Rúntur...

Hehe.. Yes! En það getur verið soldið gaman stundum. Neita því ekki (;

Voða er þetta eitthvað innihaldsríkt blogg hjá mér. Finnst ykkur ekki? (; Ég hef bara ekkert að segja ykkur. Ég er í fríi um helgina. Samt að vinna á Sunnudaginn. :cry: Það er ekki stemming fyrir því að fara mæta í vinnu þá. En talandi um vinnu. Mér finnst ég standa mig svo vel í þessari vinnu sem ég er í. Ef þú ert nýr þá skal ég segja þér að ég vinn í NýjaBakarí á Hafagötunni. Þetta er alveg hin ágætasta vinna sko. Getur verið stressandi en samt bara ágætt. Vinna er bara vinna. Vinna = Peningur. Það er eitthvað sem Karitas þráir. Eða kannski bara flestir kvenmenn. Eða reyndar allir, kallar sem konur. (:

Eru allir að fara á Akureyri um helgina? ALLIR að commenta og láta vita. Mig langar að vita hversu margir eru að fara og hverjir verða heima . Þakka ykkur –

Allavega þá er ég búin að plana að reyna að skemmta mér eitthvað um helgina. Búin að vera eitthvað svo þung. Kannski að vinnan sé að gera útaf við mig. Maður er ekki að átta sig á þessu.

En hvað segið þið fólk? Er það AK. um helgina eða?

(afsakið forvitnina, vill bara ímynda mér stemminguna sem verður í Keflavík um helgina (; )

 

Ég kveð að sinni. Sé ykkur en þið sjáið mig ekki. hoho..












» 7 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 16:52:39 / zoom-

E-mail.

Ég fékk skemmtilegt E-Malil í dag. Langar að deila því með ykkur:

 

PASS THE TEQUILA




Þetta ætti sennilega að vera límt á spegilinn á baðinu hjá þér þar sem þú getur lesið þetta á hverjum degi. Þú gerir þér kannski ekki grein fyrir því en þetta er 100% satt!



1.   Það eru að minnsta kosti tvær manneskjur í þessum heimi sem þú myndir deyja fyrir.

2.   Það eru að minnsta kosti 15 manns í þessum heimi sem elska þig á einhvern hátt.

3.   Eina ástæðan fyrir því að einhver hati þig er, viðkomandi vill vera eins og þú.

4.   Bros frá þér getur fært einhverjum hamingju, jafnvel þótt viðkomandi líki ekki við þig.

5.   Á hverju kvöldi, hugsar EINHVER til þín áður en viðkomandi fer að sofa

6.   Þú ert himinn og jörð hjá einhverjum.

7.   Þú ert einstök og sérstök í þessum heimi

8.   Einhver sem þú þekkir ekki, elskar þig.

9.   Jafnvel þegar þú klúðrar málunum, verður eitthvað gott úr því.

10.   Þegar þér finnst heimurinn hafa snúið í þig baki, líttu aftur á.

11.  Mundu alltaf eftir hrósum sem þú færð. Gleymdu dónalegum hreitum.



Þannig að..Ef þú ert elskulegur vinur, þá sendu þetta til allra , einnig þess sem sendi þér þetta. Ef þú færð þetta til baka þá veistu að þeir elska þig í alvöru.

Já og mundu.þegar lífið afhendir þér Sítrónu /Lime, biddu þá um Tequila og salt!

 

Mér fannst þetta geggjað mail. Allir að líta á þessi orð sem biblíu nr.2. Þá meina ég sérstaklega stelpur (;

Gras IíIrass


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 18:01:56 / zoom-

ég? gelgja?

Jæja, Það er komin ár og öld síðan karitas heimisdóttir bloggaði síðast, ekki satt? Alltaf byrja ég öll mín blogg með þessari leiðindar setningu. En sannleikurinn er sagna bestur!

Þá er “útskriftarferðalagið” hjá 10.bekk búið og ég sagði bæ með tárin í augunum. Það var svo ógeðslega gaman að engin orð fá því lýst skal ég segja ykkur! Nenni ekki að fara að telja allt upp hérna enda mest allt sem fór fram í þessu ferðalagi fer bara ekkert lengra. Haha .. Gaman að því.

JúJú..

Skólinn er senn á enda. Mikið var segi ég nú bara! Skólaslit á föstudaginn 2.júní. Ég hélt að þetta ætlaði aldrei að enda þessi stóra skólaganga. Loksins telst maður til fullorðins manna tölu. Jeij. En þetta jeij fylgir því ekki að ég er að fara í Framhalsskóla næsta vetur. Það verður nú eitthvað. Maður er búin að fá hótanir hingað og þangað um að það eigi eftir að taka mann í gegn á Busa-daginn. Sheeet-

Það verður eitthvað! – eins og D-taz segir.

 

 

En hvað haldiði? Kjéllan er komin með vinnu í sumar. Í Nýja-bakarí. Allir að koma að versla hjá Karitas í Nýja-bakarí. Hún gerir bestu kleinuhringi með karmellu í heimi! Neinei .. segi svona. Ekkert allir vera að koma. Þá verð ég stressuð og veit ekki neitt. Heee :$

 

Svo er það bara Jet-sky á morgun. Djöö hlakkar mér til. Við áttum svo mikinn pening eftir af því sem við söfnuðum fyrir skólaferðalagið þannig við ákváðum að gera eitthvað fleppað fyrir restina. Og þetta var það fleppaðasta eftir því að fara í fallhlífastökk. Því miður var það ekki hægt vegna lofthræðslu nokkra nemenda (;

Jii en vitiði hvað. Það styttist alveg óðum í það að hún Eva Dís systir eignist lítin snáð eða litla snúttlu. Ahhh, hlakkar svooo til að þið getið ekki ímyndað ykkur. :D Það er nákvæmlega 2mánuði og 1dag eða 62daga. Það flýgur fram hjá manni og áður en maður hefur smellt fingrunum þá er komin lítið barn í familyuna. Æðislegt það!

En ég ætla að segja þetta meira en gott í bili.

KaritasGelgja kveður.

Guðmundur sætasti frændi og ég.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 17:20:13 / zoom-

Hef bara ekki tíma í svona bull!

Titillinn segir meira en segja þarf.

Mig langar samt að koma á framfæri að á föstudaginn 28.Apríl vera haldnir styrktar-tónleikar fyrir Sigga Magg , frænda, sem lenti í alvarlegu bílslysi fyrir rúmu ári síðan ,er búin að vera á sjúkrahúsi síðan, og eru haldnir á Festi í Grindavík. En ég vil biðja alla að koma og styrkja hann og fjölskyldu hans. Nokkrir góðir tónlistamenn koma fram, ekki allt ákveðið eins og er en ég læt vita um leið og ég veit allt. Allur ágóði rennur til fjölskyldu hans.

1.000kr. inn en það má gefa meira ef maður vill.

Styrkjum þá sem þurfa!

Tekk fyrir, Blogga í senn sTórt.

KaritasHeimisdóttir.


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 19:41:50 / zoom-

Páskar og Lærandi.

Halló.

Jeij. Ég elska páskana því ég á afmæli í kringum páskana. Reyndar bara á morgun. Jibbíjeii. (:


En páskafríið mitt er nánast allt búið að fara í svefn. Það er ekkert lítið sem maður er búin að sofa. Ég er búin að vera vakna alla daga kl.2-3 um dagin og ekki farin að sofa fyrr enn 3-4 á næturnar. Það er aldeilis ástand á einum bæ. Jii. Ég og Pétur fengum páskaegg. Litli bróðir hans Péturs kom með það inn til okkar einhvern daginn og sagði: "Hérna.. þetta er handa ykkur." Þá setti hann hjartalaga páskaegg á borðið og labbaði út. Ég kom engu upp úr nema TAKK. Æj, þetta var bara sætt.  Algjör mús þessi strákur.

En í gær, Páskadag, þá kom ég heim frá Pétri um 3 leitið. Þá var hafin ratleikurinn mikli. Já, þið lásuð rétt. Við fjölskyldan förum í ratleik og leitum að páskaeggjunum okkar þannig. Ég var himinlifandi, því þá áttaði ég mig á því að ég hlyti að eiga eitt stykki páskaegg heima líka. (: Pabbi er alltaf að dunda við að gera ratleik fyrir okkur allar systurnar nóttina áður eða um morguninn. Algjört æði þessi kall. :* En þegar allir voru búnir að finna sitt egg,  eftir smá erfiði og trikkí vísbendingar, þá fórum við og kláruðum huge púslið okkar. Oh, ég elska að púsla. Ég veit,  ég er lame? Ætli ég hafi ekki bara þolinmæðina í þennan leik.

(: Ég fór síðan eftir æðislegan kvöldverð ,sem var þó með ólíku sniði, heim til Péturs. Þar var eitthvert matarboð og helle famelíen var á staðnum. Gott með þig- Við skélltum okkur út í skúr með sængina í einni og hjartalaga páskaeggið í hinni. Yes. Ekki meira né minna. Horfðum á Sin City. Djöfull er hún svöl. Ég hafði aldrei séð hana. En vá, hún er svööööl. Ég hefði passað vel þarna í myndinni ekki satt? 8) höhö-

Í dag var einungis lært. Ég hef samt ekki staðið með með öllu að læra skooo.. :lol: Svona eridda. Ég er ekki að vön að læra í fríum. Það er eitthvað sem er ekkert mikið í uppáhaldi hjá mér. Hvað með hjá ykkur ? Ég held ekki, en maður veit aldrei.

En vá hvað þetta blogg er búið að vera eitthvað sérstakt. Kannski svolítið lúðalegt. Ég veit ekkee. Sjáum til, heh.. eða kannski.. já, segjum það. Ókee.


Þanngað til næst ,krakkar , muniði að vera góð við allt og alla þá gengur allt svo miklu miklu betur - Afi á stöð2.


    

Vona að maður fái slatta af þessu á morgun. Annars..#$%&/ hehe..


Minna á nýtt trail.  www.picturetrail.com/fuckfeis-/

Allir að Kíkja og Kvitta.





» 8 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 00:22:23 / zoom-

Vindar & hugleiðingar.

Afhverju eru vindar? Það er enginn tilgangur með þeim. En það er kannski ekki aðalmálið. Ég fékk einhverja útskýringu afhverju vindar væru og hvaðan þeir kæmu. Ég er greinilega orðin kölkuð í Landafræðinni. Öss. Mér finnst þetta bara svolítið skrítið fyrirbæri. Þetta er svona gustur sem fer um mann. Líkt og vatn en ekki blautt og ekki í massa. Bara loft á fleygi ferð um allt. Stór skrítið alveg.

Jæja þá, þá er síðasta Greas sýningu lokið. Í bili. Ég vil segja í bili því að maður veit ALDREI hvað gerist í framtíðinni. Ég elska það. Sýningin í kvöld gekk þokkalega fyrir sig. Fyrir utan smá tæknilega örðuleika og Emmu og Emilíu (Mig og Tótu). Jii. Það fór allt í hund og kött í fyrsta atriðinu okkar. Ætli stressið hafi ekki kæft okkur þarna. Ég held það. Annars var þetta ágætt. Pétur, Kjarri, Elmar Snær og Halla komu. Voða gaman að sjá þau þarna. Margir fleirri kíktu .. til dæmis á borð við Eyjólf. Bróðir hennar Rebekku, hann er frægur. Hann var í Verzló-leikritinu og var lAng bestur þar. (; höhö- Gaman að sjá ykkur öll sem komu.

Undur og stór merki gerast enn. Það er komið PáskaFríí. Jeij. Ég hrópa húrra fyrir því og ætlast til að þið gerið það með mér þegar þið lesið þetta. Það er ekkert smá gott að sofa út. Shett. Ég fór í bíó í gær. Með Pétri, Kjarra og Ástrósu frænku. Fórum í bæjinn í sambíóin Álfabakka, held ég, og sáum Wolf Creek. Þessi mynd byrjaði frekar rólega fyrir hlé en eftir hlé byrjaði það versta. Heilög María og Jósef. Almáttug, hvað þetta var ógeðslegt. Ég gat virkilega ælt á pörtum. Ég sem er þræl vön hryllingsmyndum og ógeði og ég kúaðist. Ég held að málið var að ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í þegar ferðinni var haldið í bíó. Eina sem ég vissi í hausinn á mér þá, það var hvað myndin hét. Hitt átti að koma á óvart og það gerði það líka svo sannarlega. Ég var ekki viðbúin þessu.

 Mæli með þessari mynd en ekki fyrir viðkvæma!

        

Ein af aðalleikurum mynndarinnar.                             Ógeðið!! Viðbjóður þessi kall!

Þessi fær 4 stjörnur fyrir viðbjóðinn.

Diljá sys fermdist á sunnudaginn. Til hamingju með það :*  OG allir þeir sem voru að fermast.  Við fórum í kirkjuna hálf 11. Þar var voða fínt. Ég fór að íhuga trúnna mína með saman blöndu af hversu þreytt ég var. Söngurinn i kirkjukórnum lét mig íhuga bæði á sama tíma. Flókið hugarangur ýtti undir þreytuna í þokkabót. Hanna beipí var þarna í góðum gír í faðmi fjölskyldunnar. Bróðir hennar var að fermast also. Laglegt það. Við alveg eins og aular að hlægja til hvor annarra. Aular, vægasagt.

Jæja þá, vikan verður með skemmtilegra mótinu. Það verður lært og lÆrt og læRt og lærT og Lært og LÆRT! Í saman lagi við það þá er ég að fara í eitthvað sem kallast katÁ. Mjög skemmtilegt það. Ég mæli eindregið að allir kynni sér það í hverju þeir þurfa að taka sig í takÁ. Það þurfa allir á einhverju takÁ að halda, misjafnt í hverju það felst.

En ég vil bara bjóða góða nótt og þið skuluð bara eiga góða nótt eða gott kvöld eða góðan morgun eða góðan dag, fer bara eftir því hvenar þú lest þetta snældan (;

.im out mafakka.


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 17:33:00 / zoom-

excuse me..

Þetta litla sem er búið af sýningum er búið að vera HELL erfitt, reynir á líkama og sál. Ekkert grín að vera að leika í besta leikriti í bænum. hehe 8) 

Geniral-Prufan var á mánudaginn. Hún gekk ekki vel. Hreinskylnings sagt. Fumsýningin var í gær, þriðjudaginn. Hún gekk alltOF vel fyrir utan eitt lítið klikk hjá Emmu og Emilíu (Mér og Tótu). Þetta var æðisleg sýning. Við skemmtum okkur rosa vel bæði upp á sviði sem baksviðis. Ah, ég elska þetta. Þó að stressið taki smá völd á manni þá er það bara ókee.

Loka sýningar fyrir páska allavegana eru :

Í kvöld (miðvikudag) kl.8.

Fimmtudag kl.8

Það kostar 500 kall inn. Ekki meira né minna.

Við seldum 240 miða í gær skilst mér. Það er dá góður slatti af fólki til að koma að sjá Grunnskóla leiksýningu. Hvað finnst ykkur?

En eftir frumsýningu þá er hefð fyrir því, að sögn Davíðs leikstjóra, að halda smá teiti. Svo mikið teiti mátti vera samkvæmt lögum Grunnskólana að bjóða krökkunum sem komu að leikritinu upp á pizzu og coke. Afbragðs fínt. Ég og Hafdís áttum okkar góðu stundir þarna á gólfinu með spaðana haaa? (;

En ég vil þakka þeim sem komu í gær fyrir að koma og sjá leikritið okkar. Því við lögðum hart að okkur til að geta sett upp þessa geggjuðu sýningu. Bara takk allir. Ég held að ég geti sagt þetta fyrir hönd allra sem komu að leikritinu. Við bjuggumst ekki alveg við svona mörgum á frumsýningu. Þúsund þakkir everyone. :*

En jæja.. Ætli maður þurfi ekki að fara koma sér upp í skóla. Gera sig reddy fyrir sýningu í kvöld. Hvet alla að mæta!!

Koss Koss -

                                 -karitas þrEytta


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 15:50:48 / zoom-

Pestin að ganga?

Hún gekk allavega í garð hjá mér í gær. Helvítið á henni. Ég hef ekki tíma í það að vera veik. Ég er alltOF busy fyrir þetta rusl. Það er brjálað að gera í skólanum. Hellings að læra og helling efni sem við eigum eftir að fara yfir fyrir samrænduprófin og ekki nóg með það þá eru æfingar fyrir Greas-leikritið í hámarki núna. Það fer að líða að frumsýningu leikritsins. Ekki alveg komin dagsetning en ég læt ykkur vita um leið og ég veit allt um það kæru lesendur.

Finnst ykkur skemmtilegt að vera veik?     Hvernig er það hægt spyr ég nú bara? Maður er bara hangandi heima hjá sér að deyja úr veikindum. Hund-Leiðilegt. Ég veit ekki hvernig hundur tengist þessu orði því mér finnst hundar mjög skemmtilegir. Ágætis dýr.

Ég vona bara að ég lostni við þessa pest fyrir helgina. Að vera veikur um helgi það er eitt það leiðilegasta sem ég veit um. Allir einhverstaðar meðan "Karitas litla" er heima hjá sér sofandi eða eitthvað álíka :/


Jæja nóg með veikindin mín. Hvernig líður ykkur? Það er ósköp lítið að gerast þessa dagana. Nema það kannski að þið hafið einhverjar fréttir að færa? Ég efast um það.  Ekki einu sinni B.guðlausson menn hafa einhverjar fréttir fyrir mann. Þá er það slæmt. Nei nei, þeir eru að standa sig ágætlega. (Svo að allt verði ekki brjálað þá kyssi ég á bágtið með þessum orðum.)

Jæja, þetta var frekar ómerkilegt blogg. Samt sem áður bloggaði ég. Oh FEIS! :D Ég geri mitt besta, ég geri mitt besta.


 



Hér sjáum við að fólkið sem skoðar elskulega síðuna mína kýs að vera býfluga miklu fremur en einhver Jón eða Séra.Jón. Það er eitthvað sem enginn átti vona á. öss- Ég þakka þátttökuna (;


- over and out mafakka -


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 19:21:34 / zoom-

Holy Cow

Hvað er í gangi tíkur? - Eins og maður mundi þýða yfir af Kananum á góða Íslensku.

Heilagur Jónatan. Þá er árshátíð Grunnskólana búin. Ég græt mig í svefn á hverju kvöldi eftir það. Ég er heldur betur ekki sátt. Enda er ég að vinna í stór málum núna. Árshátíðin var ROSALEGA skemmtileg. Maturinn upp í skóla með kennurunum var bestur. Kennararnir sömdu geggjað lag um okkur nemendur í 10.bekk. Maturinn var mjög góður. Allir upp dressaðir og æðislegir.Þetta var einhver stund sem ég mun aldrei gleyma þó ég sé algjör gullfiskur. (væmin?) Kennararnir voru algjör yndi. Svo var ballið sjálft. Það heppnaðist bara mjög vel fannst mér. Við "folarnir" + María vorum með dans-skemmtiatriði. Ég, Katrín, Brynja, Helena, Þórhildur, Hafdís og María. Davíð átti reyndar stóran þátt í því sem flokkaðist undir skemmtiatriðið. Hann stóð sig eins og hetja í sviðsljósinu. Holtaskóli var líka með atriði úr Greas leikritinu sem við erum að setja upp um þessar mundir. Þau stóðu sig líka rosa vel. Ef þið viljið sjá þessi atriði þá eru þau á www.blog.central.is/folar-/ . Neðst til vinstir. Mjög nákvæmar leiðbeiningar á síðunni um þetta. Hinir skólanir komu líka með stór góð atriði og ef ég á að skera út hver var með besta atriðið þá verð ég að segja dansatriðið frá nokkrum ungum hnátum. Blandaður hópur, fjörheimar hópur. Held að allir kannist við hvað ég er að tala um, allavega þeir sem voru á hátíðinni.  Til hamingju með þennan glæsilega dans stelpur ;*

Eftir árshátiðina tók við eintóm hamingja. Öss. Gooolden limmóin kom og sótti okkur. Betur þekkt sem guli Hummer limmóinn. Hringir það einhverjum bjöllum? (: Það var bara geðsjúkt. OFUR flott að innan sem utan. Þetta var bara eins og fullkomin manneskja. Falleg að innan sem utan, fattiði? Okkur var keyrt upp að dyrum Þórhildar og fjölskyldu. Þar kom faðir hennar færandi hendi. Dominos - pizza beið okkar ,glóð volg, í fangi faðir hennar. Það ljómaði yfir öllum. Það var sungið, étið, drukkið (Sprite og Coke-Cola, vildi bara hafa það á hreinu) og haft það rosalega notarlegt og gott. Við létum ekki eina löggu stoppa skemmtunina. Við erum ekki kallaðir folar+María fyrir ekki neitt. hahaha Plat! Eftir allt djammið í flottasta bílnum á landinu þá lá leiðir okkar heim til Þórhildar þar sem stelpunar ætluðu að halda sé vakandi alla nóttina með því að fara í heita pottinn og fá sé nóg af nammi og kakói. Ég reyndar tók ekki þátt í þeirri vitleysu heldur fór ég heim með Pétri að sofa. Ég var búin á því eftir allan dansinn. Shett-

Ég vil bara þakka öllum sem komu að þessari skemmtun sem ég naut til fulls þetta kvöld. Thank´s everyone :*

Það var erfitt að koma sér úr rúminu daginn eftir. Það var eins og ég hafi verið að hoppa hringinn í kringum landið 3x. Max. En jæja, það tókst þó. Hér er ég allavegana á fimmtudags eftirmiðdegi við tölvuna heima hjá mér en ekki upp í rúmi hjá Pétri dauð. haha..

Elska þegar ég fæ að fara fyrr úr skólanum til að fara gera eitthvað annað. Til dæmis má taka í dag. Ég fór heim í hádeginu til að fara í fermingamyndatöku með  Diljá systir. Ekki misskylja mig. Ég er ekki að fara fermast, þó ég mundi vilja það með glööðu geði. Eins og ég og Helga mín erum búin að vera að ræða. Afhverju fermist maður bara einu sinni. Afhverju ekki 2x um ævina. Mig langar í allar þessar gjafir og peninginn. Oh, ég fæ ánægju hroll að hugsa um þetta allt samen. Er ekki bara málið að fara stofna samtök fyrir þá sem vilja fermast aftur? Helga er til. Það veit ég. heheh (:

En ætli þetta sé ekki bara komið ágætt. Ég hef ekki trú á að margir nenni að lesa þetta allt saman en ef þið gerið það nenniði þá í guðana bænum commenta. Ég met það til mikils (:

Tekk fyrir mig -

Mafakkaa!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 15:48:13 / zoom-

Bestaa

Elsku bestasta Dóra mín. Til hamingju með 17ára afmælið þitt í dag :* (vildi að ég gæti sagt líka til hamingju með bílprófið, en það kemur seinna ;) ) Þú ert best! Eins og þú veist kannski líka. Shett- Við höfum gengið í gegnum HEIL margt en erum samt ennþá góðar (ef ekki bestu) vinkonur. Þú ert algjöört æði. Þú hefur hjálpað mér í gegnum margt og ég þér. Vá, og ég veit ekki hvað og hvað. Ég gjörsamlega fýla þig í botn ;) hehehe..

Hér kemur mynd af skuttlunni minni :*

 

Hér ásamt Gussu ..                                     :*

Þið eruð öll aumingjar því Dóra er BEST :D

Lot Of Love..

Karitas Heimisdóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 15:57:30 / zoom-

Fremur framandi

"Þá erum við ekki að vanbúnaði en bara að byrja þetta.. Gefum þeim gott klapp!"

"Já takk takk.. (*brosbros*)"

Þessi þáttur. Alla mína daga. Ég var að horfa á hann á sunnudaginn útaf það var ekkErt, með stóru "E-i", í sjónvarpinu. Ágætist þættir. Ég segji það ekki.

Já, það er komin dágóður tími síðan ég kom með færslu síðast. Það er fýla af mér, ég veit. En þarþar síðustu helgi, jeminn, þá var afmælis-bústaðarferð. Voða stuð þar. Það var borðað góðan mat, farið í pottinn, spilað á spil, dansað upp á borðum svo ég nefni nú eitthvað. Stór gott það. Við fórum á fimmtudegi og komum heim á sunnudegi. Fengum aukahluti á föstudegi og svo fleirri á laugadegi.

Svo leið vikan. Ekkert gerðist. Nema það að við tókum okkur saman og búðum til dans, þó að Katrín, Brynja og María eiga meiri hlutann í honum, fyrir árshátiðina sem er haldin fyrir alla grunnskólanna í Reykjanesbæ þann 21. Mars næst komandi. Okkur er búið að ganga ljómandi vel að æfa. Allir kominir með sporin á hreinu? Gott með þig!

Helgin sem var að líða var ágæt svo sem. Föstudagurinn fór svo sem ekki í mikið. Fórum að æfa dansinn upp í íþróttahúsi og svo út að borða saman á Pizza67. Síðan bara eitthvað chill hjá mér og Pétri þangað til við þurftum að skjótast í Reykjarvíkurborg til að snúast í kringum rassgatið á systur minni. You owe me BIG time mister! Þetta var enginn önnur en Frk. Íris Edda Heimisdóttir. Við fórum og sóttum hana, Mæju og Svanhildi á Gauk&Stöng sem þær voru á tónleikum. Tónleikum með Brain Police og Dr.Spoke. Ekki gera grín af mér ef ég skrifa þetta vitlaust. Enginn er fullkominn, right? Svo segir mamma mín alltaf. En burt frá því þá biðum við í bænum eftir þeim á þessum skíta tónleikum (ekki meint!, mig langaði að vera þarna!) í rúman 1 og hálfan tíma. Ég er ekki frá því. En eftir smá miskiljning á leið heim og svona þá komumst við heim að lúlla kl. hálf7. Æði.

Laugadagurinn var splenndid. Við vöknuðum við svona sög. Sög sem sagar flísar eða eitthvað. Þvílík læti sem kemur frá þessu tæki. Shett. Sumir voru orðnir svolítið pirraðir á þessu en við létum þetta ekki á okkur fá og sváfum líklega til 3. Kíkt var á Höllu, litlu sys hans Péturs, keppa upp í íþróttahúsi. Þar var einmitt voða skemmtilegt mót í gangi. Samkaupsmótið heitir það. En mér fannst persónulega, ef á að segja það þannig, Halla hafði staðið sig mjög vel. En það voru skiptar skoðanir um það eins og allt annað. Hee? Kvöldið.. Fórum í mat hjá mom&dad. Seinniparts kvölds var eytt heima hjá Garðari Sig. Þar var hann og kærastann hún Guðrún, held ég að hún heiti. Ég, Pétur, Jói og Kjarri skokkuðum mis vel heim til hans og chilluðum. Endað var svo með því að fara í ágætis partý hjá svölum gæja sem vill láta kalla sig Teddi Mafía. Þú ert svo maður með mömmum ef þú ert kallaður það. Haa? hahaha.. Það eru kannski ekki allir með húmorinn á réttum stað fyrir þetta. En mér fannst þetta ósköp fyndið að gaurinn vildi láta kalla sig Teddi "Mafía". Enginn skildi afhverju hann var kallaður þetta. Hann vildi það bara. hehehe he he h e h e . . .  .  .  .

Á blessaðan sunnudaginn sem Guð gaf oss fórum ég og "P-ið" í bíó á Syrina. Ágætis mynd. Einum oF þung og pólitísk fyrir mig og hann. En hún slapp þó með 2 og hálfa stjörnu.

Þá er mánudagurinn genginn í garð. Hver bauð honum? Ég bauð honum að minnstakosti ekki í garðinn minn. Hell NO pardner! höhö-

Þorskur er fiskur.

Fiskur er þorskur.

Meikar þetta sens? Það voru allavega miklar deilur um þetta í heimsspeki síðasta föstudag. Kommentiði.

Ég kveð að sinni.

Gott með þig-


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 21:51:26 / zoom-

Meðan þú ert hérna

Jæja..
Þá er febrúar bara búinn. Tíminn flýgur fram hjá manni. Og ég kann ekki einu sinni að fljúga? En ég er búin að vera að pæla mikið í þessu. Lífið hleypur fram hjá manni og mér finnst maður vera ekki að njóta lífsins til fulls. Hvað er að njóta lífsins? Er það að vera alltaf alstaðar eða vera bara heima og spá í alheiminum og lesa bækur? Ég er nebblega ekki viss. Vitið þið það?  Mottóið hjá mér hefur alltaf verið : "Lifðu lífinu eins og það sé þinn síðasti dagur" eða "lifðu lífinu lifandi". En ég í reyni samt að lifa lífinu þannig þó ég viti ekkert. Manni er sagt að njóta lífsins meðan maður er ungur. Ég er alveg sammála því. En er eitthvað slæmt að njóta lífisins ungur? Ætli það sé ekki bara miklu léttara þegar maður er ungur. Þegar maður er ungur þá er lítil sem engin ábyrgð sem maður þarf að bera. Eða reyndar þarf maður að hlúnkast með einhevra ábyrgð en ekki það að maður sé eitthvaða ð spá í henni þá. En þegar maður er orðinn gamall þá þarf maður að hugsa hlutina til enda sem maður tekur sér fyrir hendur eða tekur sér ekki fyrir hendur.

En þetta var nú bara smá pæling hjá mér. Veit ekki hvort þið, kæru lesendur mínir, hafið spá eitthvað í þessu. Það væri ágætt að fá smá comment á þessa pælingu. Ég mundi ekkert segja Nei, takk ;)




Já. Gleðilegan Öskudag everybody..
Mamma á afmæli á morgun. Tilefni þess er öll familyen að fara upp í bústað. Það sem fellst inn í familyunni er : Ég, Mamma, Pabbi, Íris sys, Guðni, Eva sys og Hálfdán ( Diljá fer á samfés og kemur ekki) Aukahlutir í ferðinni : Ástrós frænka, mamma hennar og pabbi, Lísbet, Gunnar og Pía (hundurinn) kanarý-farar. Þetta á eftir að vera massíf ferð.  Frá fimmtudegi til sunnudags. (:
Ég vil þá bara óska ykkur gleðilegrar helgar og hafið þið það bara ágætt um helgina.

- já, eða þessi Effel-turn finnur sér nýja París!- Þetta sagði Eyjólfur meðal annars í leikritinu Á Tjá Og Tundri sem við fórum á í gær. Ég mæli eindregið með þessu leikriti. Og Eyjólfur var BESTUR í þessu leikriti. (Þið sem vitið ekkert þá er Eyjólfur bróðir Rebekku beipí og þið sem virið eitthvað þið vitið ;) )

Car-it-as

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 19:00:37 / zoom-

Skilningur á konu.

Vilt þú  fá að vita hvað kærastan, unnustan, eiginkonan eða kjéllingin meinar?? Hér er ykkar tækifæri strákar..

  

Enjoy..

 

Allt í lagi : Þetta notar kona gegn varnarlausum karlinum til að enda rifrildi þegar henni finnst hún hafa rétt fyrir sér. Aldrei, aldrei segja allt í lagi, þegar hún spyr þig um hvernig þér finnst nýji bolurinn sem hún var að kaupa. Það er upphaf af nýju allt í lagi rifrildi.

 

Fimm mín : Þetta er hálftími. Líkt og þegar konan spyr hann í miðjum fótbolta leik hvort hann sé ekki til í að fara út með ruslið, og hann segir jú eftir 5. Jöfn skipti.

 

Ekkert : Þetta þýðir pottþétt eitthvað. Ekkert er aldrei bara ekkert. Ekkert er yfirleitt upphafið af rifrildi sem endist í 5 mínútur og endar með allt í lagi.

 

Já gerðu það bara:   (augabrúnirnar lyftast) Þetta er ekki gott. Þarna er verið að mana þig út í að gera það sem þér datt í hug, en þú veist að það er engin glóra í  því. Þarna á undan heyrðir þú líklega þessi orð, 5 mínutur, allt í lagi og Ekkert. Boðar ekki gott.

 

Já Gerðu það bara : (augabrúnirnar eðlilegar),: Þetta þýðir ég gefst upp. Gerðu það sem þú villt því mér er alveg sama. En það er þá sem þetta er farið að virka erfitt fyrir okkur, henni er bara alveg sama.

 

Hátt andvarp : Þetta er ekki orð, en þetta ætti að vera bannað. Karlar misskilja andvarpið full mikið. Hátt andvarp þýðir, að hún hugsar til þín eins og asna. Og er að velta því fyrir sér afhverju í ósköpunum hún er að eyða tímanum í að rífast við þig út af engu.

 

Lágt andvarp : Aftur, þetta er ekki orð. Þegar lágt andvarp á sér stað, þá er það vegna þess að hún er tilbúin til að sætta sig við hlutina. Þess vegna er þér hollast að anda ekki, ekki hreifa þig, og þá áttu mögleika á því að hún haldi áfram að vera sátt.

 

Allt í lagi, þú þarft ekki að segja fyrigefðu . Þetta er stórhættulegt. Þarna er hún að meina að hún ætlar að taka sér góðan tíma í að hugsa hefndina. Allt sem endar svona að hún er í þykjustunni sátt, er bara ekki rétt.

 

Gerðu það bara : í náinni framtíð á þú eftir að koma þér í stórkostleg vandræði.

 

Takk : kona að þakka þér,, ekki láta líða yfir þig, segðu bara ekkert að þakka.

 

Takk kærlega fyrir : er allt annað en takk. Takk kærlega fyrir kemur þegar þú hefur stuðað hana verulega með misgáfulegum hlutum sem þú annað hvort hefur sagt eða gert. Það kemur til með að heyrast hátt andvarp og þá, ekki segja hvað er að, því þá kemur svarið sem karlar geta ekki “Ekkert” og þá fer boltinn aftur í gang. Þú veist 5 mín, bara, ekkert og andvörpin háu og lágu og Ýmislegt annað sem við þurfum bara að ganga í gegnum.

By the way .. Takk fab8. Ég stal þessu þar.. ;)

I´m Back ..


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8